Sign up

Terms

Welcome back

Close

Reset password

Fransí Biskví söguganga

Fransí Biskví söguganga

30/07/2024 20:00
Svalvogavegur , 471 Dýrafjörður

Fransí Biskví söguganga

Í um tvær aldir voru mennsku vorboðarnir í Haukadal Dýrafirði hinir frönsku sjómenn. Komu þeir hingað árlega til að fiska þann gula og þeirra trausta akkeri var hér í Dýrafirði nánar tiltekið sjálf Haukadalsbótin. Hvar skipin gátu legið örugg einsog í kommóðuskúffu. 

Vitanlega urðu samskipti Haukdæla við þá frönsku all mikil og um leið hagstæð á báða bóga. Var einkum um að ræða skiptiverslun hvar heimamenn gáfu prjónlesið og þáðu í staðinn konjak sem hið fræga Fransí Biskví. Gengið verður um slóðir Fransmanna sem Haukdæla í þessari sögulegu göngu.