Sign up

Terms

Welcome back

Close

Reset password

Axel O – 60 ára! Stórtónleikar í Lindakirkju

Axel O – 60 ára! Stórtónleikar í Lindakirkju

31/05/2025 20:00
Lindakirkja, Uppsalir, 201 Kópavogur

Axel O – 60 ára! Stórtónleikar í Lindakirkju

📅 Laugardagur 31. maí 2025
📍 Lindakirkja
🕗 Kl. 20:00 (húsið opnar kl. 19:30)

Sveitasöngvarinn Axel O fagnar 60 ára afmæli með stórtónleikum í Lindakirkju!

Axel O þekkja unnendur kántrý tónlistar á Íslandi.  Axel hefur á sínum ferli gefið út 39 lög, og þar af 26 frumsamin.   Lög Axels hafa náð eyrum kántrý unnenda í ýmsum löndum, og hafa m.a. náð inn á vinsældarlista country útvarpsstöðva í Texas.  
Til að fagna þessum áfanga heldur Axel veglega tónleika með hljómsveit og sérstökum gestum.

Sérstakir gestir:

🎸 Milo Deering (USA) – Virtur hljóðfæraleikari sem hefur unnið með listamönnum eins og The Eagles, Chris Stapleton og LeAnn Rimes. Hann spilar á fjölmörg hljóðfæri en er einna þekktastur fyrir pedal steel gítarleik sinn. Milo hefur komið að upptökum 24 laga með Axel O, þar á meðal nýjustu plötunni Dallas Sessions – Acoustic Covers, sem kemur út í febrúar 2025.

🎤 Kinsey Rose (USA) – Söngkona frá Nashville sem sló í gegn í 21. seríu The Voice USA. Hún hefur unnið með tónlistarfólki á borð við Vince Gill og komið fram víða um Evrópu og Ástralíu. Kinsey er einnig gestasöngkona á nýju plötu Axel O og Milo.


Hljómsveit Axel O:

🎶 Axel O – Söngur og gítar
🎶 Kinsey Rose – Söngur og gítar
🎶 Milo Deering – Pedal steel og gítar
🎶 Jóhann Ásmundsson – Bassi
🎶 Michael Lusk – Bakraddir
🎶 Sigurgeir Sigmundsson – Gítar
🎶 Dan Cassidy – Fiðla og gítar
🎶 Ásmundur Jóhannsson – Trommur

Einstakt tækifæri til að njóta alvöru kántrýtónlistar í heimsklassa flutningi!

Takmarkað sætaframboð -  Tryggðu þér miða!