Konfektnámskeið Halldórs
14/11/2024 20:15
Gala - veislusalur, Smiðjuvegi 1 , 200 Kópavogur
Konfektnámskeið Halldórs hafa verið haldin sl. 27 ár og eru alltaf jafn vinsæl. Tilvalin kvöldstund með vinahópum, vinnufélögum, saumaklúbbum eða fyrir einstaklinga vilja læra grunnatriði í konfektgerð.
Hver og einn þátttakandi lærir að búa til sitt eigið konfekt með fyllingu ásamt því að tempra ljóst súkkulaði (mjólkursúkkulaði). Innifalið er kennsla, hráefni og að sjálfsögðu afrakstur kvöldsins til að taka með sér heim.
Námskeiðið tekur um 2 klst og leiðbeinandi er Halldór Kr. Sigurðsson, konditor og bakari.
Á námskeiðinu er einnig hægt að kaupa súkkulaði til frekari heimaframleiðslu. Námskeiðið er haldið í Gala veislusal, Smiðjuvegi 1 í Kópavogi.