Sign up

Terms

Welcome back

Close

Reset password

Lífið er lotterí Hannesarholti

Lífið er lotterí Hannesarholti

September, 2024

Loksins mætir Kómedíuleikhúsið í borgina með hina vinsælu sýningu Lífið er lotterí

Sýnt verður í Hannesarholti Grundarstíg 10 Reykjavík. 

Lífið er lotterí er söngdagskrá tileinkuð textasmiðnum og leikskáldinu Jónasi Árnasyni. Hver kannast ekki við slagara á borð við Langi Mangi, Við heimtum aukavinnu, Hæ hoppsasí, Riggarobb, Einu sinni á ágústkvöldi, Augun þín blá og þannig mætti lengi telja. Sýningunni hefur verið frábærlega vel tekið og sýnd margsinnis í Kómedíuleikhúsinu fyrir vestan við dillandi og dirrindí fjöldasöng gesta. 

Segja má um Jónas með hans eigin orðum úr einu af hans vinsælu söngtextum, sem kóngur ríkti hann, og bæta við yfir leiksviði og fjöldasamkomum í áratugi og gjörir enn. Þegar landsmenn koma saman þá er oftar en ekki sungið eitthvað úr smiðju Jónasar Árnasonar. 

Þetta verður syngjandi hér og syngjandi þar skemmtilegt kveld þar sem þrjú á sviði munu flytja perlur Jónasar og allir syngja með. 

Sýningardagar: 19. september kl. 20.00 og 20. september kl. 20.00.

Events

Lífið er lotterí Hannesarholti

Hannesarholt, Grundarstígur 10, 101 Reykjavík

19/09/2024

Thursday

20:00

Ticket price

5.200 kr.

Lífið er lotterí Hannesarholti

Hannesarholt, Grundarstígur 10, 101 Reykjavík

20/09/2024

Friday

20:00

Ticket price

5.200 kr.