Sign up

Terms

Welcome back

Close

Reset password

Subotnick (Portrait of an electronic music pioneer)

Subotnick (Portrait of an electronic music pioneer)

04/09/2024 19:30
Hverfisgata 54, 101 Reykjavík

Extreme Chill Festival kynna heimildarmyndina Subotnick - Portrait of an electronic music pioneer í Bíó Paradís Miðvikudaginn 4 Septemeber kl. 21.00.

Ath. Aðeins verður ein sýning!! 

Jóhann Eiríksson (Reptilicus) opnar kvöldið kl. 19.30 með raf-spuna. 

Morton Subotnick er einn frumkvöðla þróunar raftónlistar og margmiðlunarflutnings og í verkum sem styðjast við hljóðfæri og aðra miðla, þar á meðal gagnvirk tölvutónlistarkerfi. 

Mest öll tónlist hans kallar á tölvur, eða lifandi rafræna vinnslu. Verk hans nýta margar af helstu tæknibyltingum í sögu raftólistar. 

Verkið Silver Apples of the Moon er orðið að nútímaklassík og var nýlega ritað í landskrá hljóðverka á bókasafni Bandaríkjaþings; aðeins 300 hljóðupptökur sem spanna upptökusöguna frá upphafi hafa verið valdar.

Húsið opnar kl. 19.00 - Tónleikar með Jóhann Eiríksson hefjast kl: 19.30.  Sýning Subotnick heimildamyndarinnar hefst kl. 21.00.

Subotnick - Trailer: https://vimeo.com/556036932?share=copy