
Aftur til fortíðar: 80´s & 90´s
NORDIC LIVE EVENTS KYNNIR
Aftur til fortíðar – Stærsta 80s & 90s tímahylki Íslandssögunnar!
Ertu tilbúin(n) að sleppa fram af þér beislinu og ferðast aftur í tímann? Nú er komið að því að endurupplifa gullaldarárin með sturluðu fortíðar þemu!
Aldrei áður hefur 80s & 90s viðburður af þessari stærðargráðu verið settur upp á Íslandi. Við ætlum að sameinast í alvöru risa kvöldi þar sem áhyggjur og stress eru skilin eftir við dyrnar!
Hver man ekki eftir klúbbum eins og Casablanca, Ingólfskaffi og hinu goðsagnakennda Tunglinu? Nú færðu tækifæri til að endurupplifa stemminguna með vinum, bekkjarfélögum, saumaklúbbnum eða bara hverjum sem er!
Partý stýra er engin önnur en Eva Ruza
Stórstjörnur kvöldsins:
- LIMAHL
- TECHNOTRONIC með ERIC MARTIN
- SASH!
- N-TRANCE
- CORONA
- CULTURE BEAT
- THE OUTHERE BROTHERS
Ásamt íslenskum stjörnum:
- SVALA BJÖRGVINS & STEED LORD
- DJ KIDDI BIGFOOT
- DJ DADDI DISCO
...og ÞÚ – í þínu allra flottasta 80s eða 90s dressi! Vertu með í veislunni sem ALLIR munu tala um! 🎶🔥
Miðasala & svæðaskipting:
- A - svæði: Aðal dansgólfið.
- B - svæði: 2. hæð svalir með útsýni yfir sviðið og dansgólfið (aðgangur að dansgólfinu). Takmarkaður miðafjöldi.
- VIP - svæði: 3. hæð stúka (aðgangur að dansgólfinu). Mjög takmarkaður miðafjöldi. Nánar hér að neðan.
- Hjólastólar: Verða á 2. hæð. Ein aðstoðarmanneskja per stól sér að kostnaðarlausu.
VIP PAKKINN - Aðgangur að kósí herbergi með útsýni yfir salinn og sviðið.
- Opinn bar, allir drykkir innifaldir.
- Léttir réttir í boði.
- Hittingur og mynd með sumum af stjörnum kvöldsins.
- Varningur að eigin vali innifalinn.
Aldurstakmark: 18 ára. Yngri aldur í fylgd með fullorðnum.
Ekki missa af stærsta fortíðar viðburði ársins! Gerðu þig kláran að dansa alla nóttina við bestu slagarana frá 80s & 90s!