Nýskráning

Skilmálar

Velkomin aftur

Loka

Senda mér nýtt lykilorð!

FÁIR MIÐAR
MARC MARTEL : ONE VISION OF QUEEN

MARC MARTEL : ONE VISION OF QUEEN

07.03.2025 19:40
Ásvellir 1, 221 Hafnarfirði

NORDIC LIVE EVENTS KYNNIR Í SAMSTARFI VIÐ VIKING LITE & BYLGJUNA:

STÓRTÓNLEIKA MARC MARTEL & ONE VISION OF QUEEN ÁSAMT HR. EYDÍS OG BRYNDÍSI ÁSMUNDS

Marc Martel er Íslendingum að góðu kunnur, hafandi leikið listir sínar fyrir troðfullri Laugardalshöll 2022 og tvenna uppselda tónleika í Háskólabíó 2023. Nú er hann, ásamt hljómsveit sinni, á leiðinni til landsins í síðasta sinn í bili og mun koma fram á sannkallaðri tónleikaveislu á Ásvöllum ásamt góðum gestum.
 
Marc Martel er raddtvífari Freddie Mercury og hefur ferðast um heim allan til að flytja stærstu smelli Queen ásamt hljómsveit sinni. Marc er söngrödd Freddie í Óskarsverðlaunamyndinni Bohemian Rhapsody, sem fjallar um sögu Queen.  Hann hefur einnig komið fram með sjálfum meðlimum Queen og einnig með sinfóníuhljómsveitum sem flytja Queen lög, slíkur er hæfileiki Marc.

Allir aðdáendur Freddie Mercury og Queen ættu alls ekki að láta þennan viðburð fram hjá sér fara því hér er einstakt tækifæri á að upplifa öll lögin, flutt á óviðjafnanlegan máta. Það þarf ekki annað en að skoða lifandi flutning á netinu til að sjá hversu magnaður drengurinn er.

Upphitun er í höndum hinnar frábæru stuðsveitar Hr. Eydís með Ernu Hrönn í broddi fylkingar ásamt sérstökum gesti, Bryndísi Ásmunds.

Aðeins er selt í sæti og því um takmarkað miðaframboð að ræða. Það verða skjáir í salnum sem sýna það sem fram fer á sviðinu.
 
Aldurstakmark:
Undir 18 ára í fylgd með fullorðnum.

Húsið opnar kl. 18:00
Opnað inn í sal kl. 19:00
Dagskráin hefst kl. 19:40

Framleiðsla: Nordic Live Events