
Blái hnötturinn
24.11.2024 14:00
Hafnarstræti 3, 425 Flateyri
Leikfélag Flateyrar setur upp sígilda ævintýrið um Bláa hnöttinn eftir Andra Snæ Magnason.
Villibörnin sem búa á hnettinum verða logandi hrædd þegar geimskip brotlendir. En ógurlega geimveran reynist vera hinn galsafulli Gleði-Glaumur. Hann lofar þeim endalausu fjöri og enn meira stuði í skiptum fyrir dass af æsku þeirra. En hvers virði er æskan? Og er hægt að fá hana til baka? Komið með í langhættulegasta ævintýri sem gerst hefur á Bláa hnettinum fyrr eða síðar.
Sýningartími: 120 mínútur með hléi.
Stórskemmtileg sýning sem hentar allri fjölskyldunni.
Miðaverð:
Almennt verð kr. 3.900.
Nemendaverð kr. 3.000. (Leik-,grunn-,framhalds-, lýð- og háskóla)
Miðaverð við hurð kr. 4.500.