Nýskráning

Skilmálar

Velkomin aftur

Loka

Týnt lykilorð?

 HALLOWEEN HORROR SHOW

HALLOWEEN HORROR SHOW

október, 2024

NORDIC LIVE EVENTS KYNNIR Í SAMSTARFI VIÐ COCA COLA, PARTÝBÚÐINA & BÓNUS: HALLOWEEN HORROR SHOW.  

Hey, Þorirðu? Hryllilegasta tónleikasýning sögunnar, HALLOWEEN HORROR SHOW snýr aftur í Háskólabíó. Stuðlabandið með Siggu Beinteins, Stebba Jak, Diljá Pétursdóttir og Dag Sig í broddi fylkingar ásamt Ólafi Egilssyni sem skuggalegasta sögumann veraldar. Þau munu þau flytja hræðilega góða dagskrá sem fær blóðið til að renna. Dansarar og leikarar munu einnig herja á sviðið líkt og andsætt væru undir dúndrandi slögurum á borð við Thriller, Highway To Hell, Zombie, Creep auk laga úr Litlu Hryllingsbúðinni og Rocky Horror svo eitthvað sé nefnt. Á undan sýningunni verða alls kyns verur og vættir á sveimi og uppákomur í anddyrinu sem mun láta kaldan svita renna niður bak gesta. Hvatt er til að mæta í búningum. Það fer enginn óskelkaður úr húsinu svo mikið er víst. Ég myndi ekki koma ef ég væri þú.

Leikstjóri: Greta Salóme.
Tónlistarstjórn: Stuðlabandið.
Sögumaður: Ólafur Egilsson.
Söngvarar: Sigríður Beinteinsdóttir, Stefán Jakobsson, Selma Björnsdóttir, Diljá Pétursdóttir, Dagur Sigurðsson o.fl.
Undirleikur: Stuðlabandið.

Aðeins er selt í sæti og því um takmarkað miðaframboð að ræða.  

Aldurstakmark: Yngri en 18 ára í fylgd með fullorðnum. 

Framleiðsla: Nordic Live Events & Stuðlabandið. 


VIÐBURÐIR

25.10.2024

föstudaginn

20:00

Miðaverð

9.900.-13.900 kr.

26.10.2024

laugardaginn

20:00

Miðaverð

9.900.-13.900 kr.