Persónuverndarstefna MidiX.is
Persónuverndarstefna MidiX
Almennt
MidiX selur aðgöngumiða á ýmis konar viðburði.
Söfnun persónuupplýsinga
Notkun persónuupplýsinga
MidiX geymir persónuupplýsingar og notar þau í samræmi við gildandi lög.
Þetta þýðir að MidiX verndar persónuupplýsingar sem geymdar eru í kerfinu og að þú hefur alltaf rétt á því að hafa samband við MidiX að fá upplýsingar um hvaða persónulegu gögn þín eru geymd hverju sinni. Í þessari stefnu er útskýrt hvernig MidiX vinnur persónuupplýsingarnar þínar þegar þú notar kerfið..
MidiX meðhöndlar persónuupplýsingarnar sem þú gefur upp í tengslum við notkun kerfisins eða í tengslum við hvernig þú hefur samband við okkur. Upplýsingarnar geta verið t.d nafn, netfang, símanúmer, heimilisfang, eða aðrar upplýsingar sem þú gefur upp þegar þú kaupir miða eða ert í öðrum samskiptum við MidiX.
Af hverju notar MidiX persónuupplýsingar?
Persónuupplýsingar þínar eru notaðar af MidiX til að mögulegt sé að:
- uppfylla skuldbindingar okkar til þín eins og samið er um, til dæmis svo þú getir sótt miðana þína, svo þú getir fengið miðana þína aftur ef þú af einhverjum ástæðum finnur þá ekki eða hefur glatað þeim ofl.
- taka á móti og vinna með korta- og snjallgreiðslur.
- bæta kaupferlið og aðra þjónustu.
- halda við góðu viðskiptavinasambandi í samskiptum þínum við MidiX
- sjá um endurgreiðslur á miðakaupum.
Hver hefur aðgang að persónuuupplýsingunum þínum?
Persónuupplýsingar eru unnar af starfsfólki MidiX. Svo lengi sem það sé engin lagaleg skylda til að birta persónuupplýsingar munu þær ekki verða afhentar til annarra aðila. MidiX birtir aldrei eða selur persónuupplýsingar í markaðslegum tilgangi til þriðja aðila. Öllum sem hafa aðgang að gögnum er skylt að vinna aðeins úr þeim í samræmi við GDPR lög nr. 90/2018.
Hversu lengi eru persónuupplýsingar geymdar?
MidiX geymir persónuupplýsingar þínar svo lengi sem það er nauðsynlegt til að uppfylla skyldur sem eru fyrir hendi hverju sinni.
Öryggi
MidiX grípur til viðeigandi tæknilegra og skipulagslegra ráðstafana til að vernda persónuupplýsingar sem unnið er með. Aðgerðirnar veita öryggi sem er í samræmi við gildandi löggjöf um gagnavernd og er viðeigandi að teknu tilliti til:
- þeirra tæknilegu möguleika sem fyrir hendi eru.
- hvað það myndi kosta að innleiða aðgerðirnar.
- sérstakra áhættu sem fylgja vinnslu persónuupplýsinga.
- hversu viðkvæmar persónuupplýsingarnar eru.
Uppfærsla persónuverndarstefnunnar
MidiX uppfærir þessa persónuverndarstefnu reglulega og er nýjasta útgáfan alltaf aðgengileg á MidiX .
Hafa samband
MidiX ehf.
Kt. 510220-1370
Bankareikn: 0515-26-011370,
Heimili: Skútuvogi 3, 104 Reykjavík
Netfang: info@midix.is
Sími: 567-88048
Persónuverndarstefnan gildir frá 1. janúar 2024.