Skynvera / Futuregrapher Minningartónleikar
Heiðurstónleikar til minningar um Futuregrapher
Árni Grétar, betur þekktur sem tónlistarmaðurinn Futuregrapher, lést þann 4. janúar 2025. Árni var einstakur brautryðjandi í íslenskri raftónlist og verður hans sárt saknað af tónlistarsamfélaginu.
Til að heiðra minningu hans hafa fremstu raftónlistarmenn landsins sameinast og munu standa fyrir sérstökum minningartónleikum í Gamla bíó þann 25. febrúar 2025.
Á sviðinu koma fram meðal annars:
- Samaris
- Stereo Hypnosis
- Yagya
- Skurken
- DJ Flugvél og Geimskip
- Sísy Ey
- Húsdreki
- Thoranna Björnsdóttir
- Tonik Ensemble
- Bistro Boy
- og fleiri stórkostlegir listamenn.
Húsið opnar kl. 18:30 og tónleikarnir hefjast kl. 19:00.
Athugið: Aldurstakmark er 18 ár.
Árni skilur eftir sig tvo syni sem voru honum allt, og mun allur ágóði tónleikanna renna óskiptur til þeirra.
Ef þú vilt styðja málefnið frekar er einnig hægt að leggja frjáls framlög inn á eftirfarandi reikning:
- Reikningsnúmer: 515-14-412076
- Kennitala: 220781-4459
Komum saman, njótum tónlistarinnar og heiðrum minningu einstakrar manneskju sem gaf svo mikið af sér til íslenskrar menningar og raftónlistar.