Stórsýningin FIT&RUN 2024
Komdu á stórsýninguna FIT&RUN sem haldin verður í Laugardalshöll, daganna 22. og 23. ágúst nk.
Þar verða um 60 sýnendur sem kynna þar vörur sínar og þjónustu. Heimasíða sýningarinnar er á slóðinni www.fitrunexpo.is
Á sýningunni gefst frábært tækifæri til að kynna sér allt það nýjasta á markaðinum í fatnaði, hlaupaskóm, næringu, undirbúningi o.fl. fyrir hlaupið.
- Frábær tilboð í gangi meðan á sýningunni stendur.
- Ef þú hefur áhuga á því að fara að hlaupa þá er sýningin að fara að hjálpa þér að taka þau fyrstu skréf.
- FIT&RUN bíður upp á eitthvað fyrir alla, hvort sem þú ert vanur hlaupari eða rétt að byrja.
Sýningin er opin:
Fimmtudagur, 22. ágúst: Frá kl. 15:00 – 20:00
Föstudagur, 23. ágúst: Frá kl. 14:00 - 19:00
Þeir sem hafa skráð sig í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fá frítt inn á sýninguna.
Miðaverð aðeins kr. 950 og rennur kr. 200 af hverjum seldum miða í pott sem dregið verður úr og rennur upphæðin til eins af þeim góðgerðarfélögum sem taka þátt á sýningunni.
Til að gera þetta enn skemmtilegra leynast vinningar sem verða dregnir úr seldum miðum!
Í lok sýningarinnar verða dregnir út tveir miðakaupendur sem hljóta tvo boðsmiða hvor á SCOOTER STÓRTÓNLEIKANA sem haldnir verða í Laugardalshöll 18. október nk. Hver vinningur er að verðmæti kr. 25.000.
Frítt fyrir 12 ára og yngri í fylgd með fullorðnum.
Aðgöngumiðar verða einnig seldir við innganginn.
Komdu til að smakka, snerta, sjá og heyra.... og gerðu góð kaup í leiðinni.