Nýskráning

Skilmálar

Velkomin aftur

Loka

Senda mér nýtt lykilorð!

Styrktartónleikar Konukots

Styrktartónleikar Konukots

24.10.2024 20:00
IÐNÓ, 101, Vonarstræti 3, Reykjavík

Konukot er neyðarskýli fyrir heimilislausar konur í Reykjavík og hefur mikilvæga þjónusta þeirra verið starfræk síðan árið 2004. Í tilefni þess að Konukot á 20 ára afmæli í ár ætlum við að halda styrktartónleika! Styrktartónleikar Konukots verða haldnir þann 24.október í Iðnó.. Á sviðinu verða stórkostlegir tónlistarmenn sem ætla að halda uppi stemningunni! Einnig verður bráðfyndni og ávallt skemmtilegi Villi Neto veislustjóri kvöldins.

Þeir tónlistarmenn sem verða:

Clubdub
Daniil
Diljá Péturs
Emmsjé Gauti
Izleifur
Sprite Zero Klan

Allir þeir sem hafa hjálpað okkur að gera þennan viðburð að veruleika eru að gefa vinnuna sýna og erum við þeim ævinlega þakklát.
Um sitjandi tónleika er að ræða og selt í ónúmeruð sæti. 

Húsið opnar klukkan 18:30 og hefjast tónleikarnir klukkan 20:00. Kotið fatamarkaður ætlar að bjóða upp á pop up markað á milli kl. 18:30-20:00. Þar verður hægt að versla sér ýmsar vörur til styrktar Konukots.

Hlökkum til að sjá ykkur!