Svavar Knútur í Haukadal
15.06.2024 20:00
Svalvogavegur , 471 Dýrafjörður
Vestfirska söngvaskáldið og gleðigjafinn Svavar Knútur mætir í Kómedíuleikhúsið Haukadal Dýrafirði með tónleika að hætti Knútsins.
Tilefnið er útgáfa á plötunni Ahoy! Side B auk tvöfalda vínylsins Ahoy, sem marka endapunkt á 15 ára löngu verkefni þar sem Svavar hefur kafað ofan í sorgarferlið og fegurðina sem þar er að finna.
Að vanda mun Svavar kasta fram sögum einsog honum einum er lagið enda mikið sagna- sem söngvaskáld.
Gestum gefst tækifæri til að höndla vínyla Svavars á kómísku verði fyrir og eftir tónleika.
Að vanda verða hinar víðfrægu Haukadals leikhússnittur í boði á þessum einstöku tónleikum hins vestfirska Svavars Knúts.